Endurheimt RÚV?

föstudagur, 20 apríl, 2007

Ég sá einhverja fyrirsögn þess efnis að Vinstri grænir hafi nú gert endurheimt RÚV að framtíðarbaráttumáli sínu. Sem ég reikna með að þýði að þeir vilji gera það aftur að ríkisstofnun.

Ég skil ekki hvaða sefjun er í gangi í þessu máli. Vinstri grænir hafa fyrir löngu bitið það í sig, og líka margir Samfylkingarmenn og Framsóknarmenn, að Sjálfstæðisflokkurinn stefni að því leynt og ljóst að selja RÚV og að rekstrarformsbreytingin sé bara fyrsta skrefið í þá átt.

Ég hef enga trú á öðru en að stjórnmálaflokkarnir, allir með tölu, muni standa vörð um RÚV alveg fram í rauðan dauðann — hvað svo einhverjir einstaklingar innan þeirra eru að láta hafa eftir sér. Ég hygg að enginn flokkur geti hugsað þá hugsun til enda að vera alfarið upp á náð og miskunn einkarekinna sjónvarpsstöðva kominn um allt sem heitir umfjöllun um stjórnmál á þessu landi.

Það eina sem raunverulega ógnar tilvist RÚV eru kjósendur. Fyrir um áratug sýndi einhver skoðanakönnun að yfir 70% landsmanna styður RÚV og er fylgjandi því að ríkið haldi þessum rekstri áfram. Ef þessi tala fer að dunka niður í 50% eða eitthvað þaðanaf minna þá er stjórnmálaflokkunum ekki lengur stætt á því að halda RÚV lengur úti.

Leave a Reply