Útvarpsleikhúsið og Efstaleitið

föstudagur, 11 maí, 2007

Ég var að frétta að ný yfirstjórn RÚV sé að íhuga að leggja niður útvarpsleikhúsið til að spara. Ég á bágt með að trúa að það verði gert; bæði er það að útvarpsleikritahefðin stendur á gömlum merg (það fyrsta var flutt árið 1935) og svo er hlustunin glettilega mikil: ef miðað er við meðalaðsókn að sviðsverkum í leikhúsunum þá er hlustun á útvarpsleikrit tvöfalt til sexfalt það.

Raunar finnst mér skrítið að menn skuli vera að íhuga að leggja niður útvarpsleikhúsið áður en þeir íhuga að selja Efstaleitið.

Leave a Reply