Árásargirni á netinu

laugardagur, 16 júní, 2007

chat.jpg

Fyrir nokkru var í Bandaríkjunum gerð könnun á hegðun fólks á spjallborðum. Hún stóð í einhverjar vikur og fór þannig fram að róbotar (“platfólk”) voru sendir inn á nokkur spjallsvæði, ýmist sem virkir þátttakendur í umræðum eða óvirkir — þ.e. ýmist voru útbúin handrit sem gerðu róbotum kleift að ‘tjá sig’ eða öllu heldur setja inn einhver ummæli eða þeir voru einfaldlega látnir þegja þunnu hljóði. Því það er nú einu sinni svo að yfirgnæfandi meirihluti fólks sem hangir á spjallborðum tekur sjaldan eða aldrei þátt í umræðum heldur situr þögult á hliðarlínunni og fylgist með því sem fram fer. Um þessa rannsókn er fjallað hér.

Einn liðurinn fólst í því að róbotum var skipt upp í þrjá hópa, einn fékk karlmannsnöfn (Dave, Mike o.s.frv.), einn kvenmannsnöfn og sá þriðji óræð nöfn á borð við Stargazer, Redwings eða hvað það nú var. Allir þessir róbotar voru látnir vera þögulir. Niðurstöðurnar voru á þá lund að þeir sem voru með kvenmannsnöfn fengu á sig 25 sinnum fleiri árásir en róbotar með karlmannsnöfn (með “árásum” er átt við persónuleg skilaboð til viðkomandi sem eru illkvittin, móðgandi, klámfengin, fela í sér hótanir o.s.frv.) Tuttugu og fimm sinnum fleiri.

Þetta kom upp í hugann þegar ég sá frétt á visir.is áðan um að nú sé í uppsiglingu kærumál í Bandaríkjunum vegna atferlis 28 einstaklinga á spjallborði nokkru sem aðallega er notað af lögfræðinemum (!).

Leave a Reply