pm.jpeg

“Hlutafélagavæðing RÚV hafði ekki að markmiði að auðvelda RÚV að kaupa starfsmenn annarra stöðva og veita þeim ríkisskjól. Væri ekki best að selja batteríið allt (fyrir utan gömlu gufuna), svo að snillingarnir gætu keppt við Baugsmiðlana á jafnréttisgrundvelli, án þess að fá nefskatt?”

Þessi bloggfærsla Björns Bjarnasonar hefur vakið talsverða athygli í bloggheimum og víðar, ekki síst vegna þess að hann hefur harðneitað að útskýra frekar hvað hann á við eða hvert tilefnið var. Þarna er á ferðinni allhörð gagnrýni á Pál Magnússon (og Þórhall Gunnarsson væntanlega) svo það er kannski ekki undarlegt þótt Björn hafi ákveðið að þegja sem fastast og láta ekki teyma sig út í neinskonar umræðu.

Svo komu viðbrögðin og viðbrögðin voru á þá lund að menn tóku retoríska spurningu Björns eins og um raunverulega spurningu væri að ræða. DÓMSMÁLARÁÐHERRA VILL SELJA RÚV fullyrti Fréttablaðið í fyrirsögn í gær og hver stjórnmálamaðurinn á fætur öðrum hefur tjáð sig um málið, þ.e.a.s. hvort þeim finnist að það eigi að selja RÚV eður ei.

En þetta er fráleitt pointið. Pointið í ummælum Björns er eitthvað á þessa leið: Ef ríkissjónvarpsstöð hendir sér út í samkeppni við einkareknar stöðvar — og alfarið á forsendum einkarekinna stöðva (þ.e. á kommersíal forsendum) — þá er í rauninni ekkert sem réttlætir það að halda úti ríkissjónvarpi. Þessu sjónarmiði er ég innilega sammála.

Jón Kaldal heldur því fram að kaupin á Silfri Egils hafi verið kornið sem fyllti mælinn hjá ráðherra (hvaðan svo sem hann hefur það). Hann setur líka spurningamerki við þá ráðstöfun RÚV að kaupa sýningarréttinn á Evrópukeppninni í knattspyrnu fyrir um 100 miljónir og yfirbjóða þannig 2 einkastöðvar. “Til hvers er Ríkisútvarpið að eyða háum fjárhæðum af takmörkuðu ráðstöfunarfé í efni sem átti að sýna annars staðar í opinni dagskrá?” spyr Jón. “Hefði ekki verið nær að verja fénu í framleiðslu á nýju innlendu efni?”

Ég tek undir það með Jóni að umræða um RÚV og hlutverk þess er af hinu góða og í rauninni alveg bráðnauðsynleg. Hitt er svo annað mál að það er fullsnemmt að gagnrýna Pál Magnússon — finnst mér — það á meira og minna eftir að koma í ljós hvað verður úr þessu Sjónvarpi undir hans stjórn.

Leave a Reply