tvsettid.jpg

Þegar ég var að vinna sem leikmyndahönnuður á Stöð 2 endur fyrir löngu kynnist ég Gesti Gunnarssyni sem er víst alveg óhætt að kalla fjölfræðing. Aldrei fékk ég botn í það hvaða starfsheiti hann hafði eða hvar hann ynni í fyrirtækinu nákvæmlega; hans sérsvið var eiginlega að finna lausnir á hvers kyns tilfallandi vandamálum. Það var sama hvar borið var niður — praktísk eðlis- og efnafræði, tækni, mekaník, ljósmyndafræði, linsur eða hvað — aldrei kom maður að tómum kofunum hjá Gesti.

Nú er Gestur farinn að skrifa endurminningar sínar á blogginu, þ.á.m. um ár sín hjá Stöð 2. Hér eru nokkrir molar:

Stöð 2 III
“[...] þarna á kaffistofunni sat Marinó kl. 15.30 þann níunda október þegar John Wallis (erlendur sérfræðingur) kom til hans og sagði honum að fyrsta útsending yrði þá um kvöldið.”

Um fyrstu útsendinguna (hátíðarávarpið sem ekkert hljóð var á) og dagskrárefnið í blábyrjun. Kristján Jóhannsson óperusöngvari vígði upptökusalinn og einnig komu við sögu Sverrir Stormsker, Ari Garðar sem átti að kenna íslendingum að búa til mat og Bryndís Schram sem stjórnaði þættinum “Happ í hendi”.

Stöð 2 IV
“Páll Baldvin Baldvinsson var farinn að vinna við dagskrárgerðina, hann hafði átt leikhús sem lítið var eftir af annað en risastór svört tuska úr flaueli sem hægt var að breyta í fína leikmynd hvar sem var.”
Stöð 2 var ekki fyrr tekin til starfa en Alþinginskosning dynja yfir með tilheyrandi kosningasjónvarpi. Auk Páls Baldvins var Helgi Pé tekinn til starfa og stjórnaði hann spurningaþættinum “Meistarinn” sem var tekinn upp á Þjóðminjasafninu

Stöð 2 V
“Ef vantaði myndefni með fréttum voru þarna tveir snillingar, Ómar Stefánsson og Steingrímur Eyfjörð sem teiknuðu bara myndasögu.”
Meira um fyrstu mánuðina hjá Stöð 2. Þáttagerðin gekk ljómandi vel og um sumarið mætti Björn G. Björnsson að teikningar að leikmynd fyrir eitthvað sem kallað var “Heilsubælið”.

Heilsubælið
“Fyrir dularfulla duttlunga örlaganna lenti ég í því að smíða leikmynd fyrir Heilsubælið, sem er eitt merkilegasta framlag Íslendinga til leiklistar á tuttugustu öld. “
Leikmynd Björns G. Björnssonar rís í örsmáu fréttastúdíóinu og á sama tíma er Jón Óttar önnum kafinn við að selja frönskum auðkýfingum hlutabréf í Stöð 2.

Stöð 2 VI
“Morgunin eftir sagði ég upp þessu aukastarfi og var eini sviðsstjórinn sem gerði það. Allir hinir voru reknir.”
19:19 er hleypt af stokkunum og reynast útsendingar það erfiðar í vöfum að Gestur tekur að sér að vera sviðsstjóri á móti Eyþóri. Einnig: sjónvarpsbingó fer í loftið eftir danskri forskrift með þeim afleiðingum að símkerfi lýðveldisins hrynur.

Stöð 2 VII
“Á æfingunum kom í ljós að bolirnir vildu gangast inn í rassskoruna á stúlkunum þegar þær gengu fram pallinn og urðu hálf hallærislegar aftanfrá séð. Vandinn var leystur með gólfteppalímbandi [...]”
Sjónvarpsbingóið misheppnaðist og var jarðað í skyndingu. Næsta stórverkefni stöðvarinnar var að auglýsa nýopnað Hótel Ísland með því að vera með Fegurðarsamkeppni Íslands þaðan í beinni útsendingu.

Stöð VIII
“Einhver fékk þá hugmynd að skák væri upplögð sjónvarpsíþrótt og í framhaldi af því ákveðið að halda heimsbikarmót í skák hér á Íslandi”.
Um ólögmæta bjórdrykkju starfsmanna stöðvarinnar í Þórsmörk og áframhaldandi ævintýri í framleiðslu dagskrárefnis.

Stöð IX
“Nú var allt í voða, mótið átti byrja eftir tvo daga og allt í klessu. Hannes J. hringdi í Tölvumyndir og spurði þá hvort þeir kynnu á svona, jú þeir útbjuggu eitthvað sem virkaði og dæmið gekk upp.”
Enn er tæknin að stríða starfsmönnum Stöðvar 2. Ekki bætti úr skák að aðfengnir skáktölvusérfræðingar töluðu bara frönsku.

Stöð 2 X
“Jón Óttar var ekki af baki dottinn. Hann réð bara í vinnu yfirkennara BBC í sjónvarpsfræðum, sá heitir Brian Phillips og kenndi okkur í tvær vikur. Ég skráði mig í alla tímana og var það býsna fróðlegt.”
Kviðdómsþáttur Jóns Óttars á Hótel íslandi verður ekki langlífur; fréttamenn læsa að sér og fara í verkfall en Gestur fær óvænt tækifæri til að setjast aftur á skólabekk.

Stöð 2 XI
“Eitthvað var talað um að þetta væri allt of dýr rekstur, bankinn var eitthvað órólegur og sendi sinn fulltrúa inn, það var Jón Sigurðsson sem kom úr Miklagarði. Það eina sem breyttist var að Jón lét kaupa nýja tegund af klósettpappír, þennan gráa harða sem heitir KARIN. Valgerður hafði verið með mjúkan, bleikan, sá hét Kimberley Clark. Jón sagði að þetta sparaði 100 þúsund á mánuði.”
Hagræðingartímar fara nú í hönd.

Stöð 2 XII
“Jón fór vestur með tökulið en afraksturinn var rýr, hylkið var svo þungt að sjónvarpsstjórinn flaut lóðréttur í sjónum með fæturna upp í loftið. Jón var nýkominn úr brúðkaupsferð til Bahama eyja þar sem hann hafði lært að kafa.”
Um ódýrar lausnir í leikmyndagerð og áform Jóns Óttars um að gera neðansjávarmynd úr Breiðafirði.

Stöð 2 XIII
“Valgerður keypti sér íbúð á Laugarásvegi 1, íbúðin fékkst með afslætti því hún var gölluð, ef Vala fór í sturtu lak vatn niður á hæðina fyrir neðan en þar var áfengisverslun. Rauðvínið var geymt undir lekastaðnum og var stundum selt með afslætti ef það voru bleytublettir á miðunum.”
Um tilurð litatónsins “Völu bleikt”.

Stöð 2 XIV
“Til að auka tekjurnar var farið í markaðsátak sem átti að heita Stöðin á Staðnum. Jón Árna hannaði leikmynd sem hægt var að rúlla inn í ,, DAFinn”, svo keyrði Kiddi rót hringveginn og Jón Óttar á eftir í þyrlu eða bíl allt eftir því hvort var flóð eða fjara í tékkheftinu.”
A meðan þessari yfirferð sjónvarpsstjórans stendur er smiðaður nýr upptökusalur á Lynghálsnum og inn í hana vegleg leikmynd fyrir nýja leikna gamanþáttaröð.

Stöð 2 XV
“Nú fréttist að nýr banki væri í burðaliðnum, Íslandsbanki og Verslunarbankinn sem lánað hafði peninga í Stöðina yrði partur af þessum nýja. Til að Verslunarbankinn væri einhvers virði varð að setja tryggingar fyrir skuldum stöðvarinnar til að dæmið gengi upp varð þetta að vera klárt fyrir áramótin 89-90.”
Nýja gamanþáttaröðin stóð ekki undir væntingum en í staðinn er boðið upp á spurningaþáttinn “Kynin kljást” í umsjá þeirra Bryndísar Schram og Bessa Bjarnasonar.

Stöð 2 XVI
“Stofnendurnir hurfu, Þorvarður Elíasson skólastjóri Verslunarskólans varð sjónvarpsstjóri. Nokkrir af okkar mönnum fóru að vinna hjá Sýn sem hafði eftir pólitískum leiðum fengið úthlutað sjónvarpsrás sem ekki átti að vera til. Til að hindra samkeppni keypti Stöðin (sem hét nú Íslenska Útvarpsfélagið, eftir sameiningu við Bylgjuna) Sýn, komu þá mennirnir aftur heim en stoppuðu stutt minnir mig.”
Umbrota- og hagræðingatímar fara í hönd; enn á ný eru lögð drög að nýrri íslenskri framhaldsþáttaröð en þau áform renna næstum jafnskjótt út í sandinn. Gestur hættir hjá Stöðinni.

Leave a Reply