astralir.jpg

Áströlsk kvikmyndagerð hefur verið í lægð undanfarin ár og þar í landi eru menn sammála um að ein aðalástæðan sé undirmálshandrit, að það sé alltof algengt að hrá og ófullburða handrit fari í framleiðslu. Meira fjármagni þurfi að veita í handritsgerð og þróun segja menn. En er það rétt? Þrír álitsgjafar sem ástralska dagblaðið The Australian leitaði til eru þeirrar skoðunar að vandamálið sé menningarlegs eðlis og djúpstæðari en svo að það sé hægt að leysa það með því að henda í það peningum. Viðhorfsbreytinga sé þörf meðal ástralska handritshöfunda.

Meðal þess sem þremenningarnir benda á er þetta:

Menn eru slegnir ákveðinni blindu gagnvart drama (dramatískum átökum) og vilja álitsgjafar meina að það stafi af því að Ástralir sem þjóð eru mjög stilltir inn á að forðast átök.

Vanþekking handritshöfunda er mikil og almenn (vanþekking á kvikmyndasögunni, á kvikmyndaklassíkinni, á handritsgerð sem fagi eða sérgrein) og ekki bara það heldur séu höfundar ófúsir til að viðurkenna það eða reyna að bæta úr. Álitsgjöfum finnst menntamálum handritshöfunda í Ástralíu alvarlega ábótavant.

And-bandarísk viðhorf gera það að verkum að höfundar líta svo á að hugmyndin um áhrifamikla dramatíska byggingu sé angi af menningarlegri heimsyfirráðastefnu BNA. Menn hendi gjarnan barninu (sterkri byggingu) út með baðvatninu.

Flestir atvinnuhandritshöfundar í Ástralíu hafa hlotið uppeldi sitt í sjónvarpssápunum Friends og Home and Away og lært þar slæleg vinnubrögð. Eins og það að skapa persónur sem ræða fram og aftur um hvað þeim finnst eða hvað þær hyggjast gera í stað þess að grípa til athafna og láta verkin tala.

Aðalpersónur (einkum karlpersónur) eru oft og tíðum passívar; þær hreyfast ekki af eigin hvötum heldur bregðast við áreiti annars staðar frá.

Oftrú á frumleika. Sú trú að þegar manni dettur í hug eitthvað sem aldrei hefur verið gert áður (eins og það að gera drullupoll að aðalpersónu í bíómynd) þá hljóti það að hafa ótvírætt (listrænt) gildi í sjálfu sér.

Greinina í The Australian má lesa í heild sinni hér.

Leave a Reply