Brot úr sjónvarpssögu Suður-Afríku

miðvikudagur, 27 febrúar, 2008

Sjónvarpsútsendingar hófust ekki í Suður-Afríku fyrr en um miðjan áttunda áratuginn — heilum 20 árum á eftir Íslandi. Sjónvarp krefst dreifikerfis og þareð hvíti minnihlutinn bjó svo dreift í landinu stóð það mjög lengi í mönnum að ráðast í þá heljarinnar framkvæmd að koma upp nauðsynlegu dreifikerfi.

Svo leið aðskilnaðarstefnan undir lok og þá fyrst varð sprenging í framleiðslu innlends efnis fyrir sjónvarp. Sápur eru mjög fyrirferðamiklar en nú eru menn að fikra sig út í — hvað annað –sakamálaþáttagerð.

Búturinn hérna fyrir ofan er úr Zero Tolerance sem er fyrsti suður-afríski krimminn. Ég veit það eitt um þennan þátt að árið 2000 fengu framleiðendurnir til sín tvo bandaríska handritshöfunda/framleiðendur til skrafs og ráðagerða um verklag og til að starta handritsvinnunni; Suður-Afríkumenn skrifuðu þó eigi að síður öll handritin og sáu alfarið um þáttagerðina. Þetta lítur nokkuð forvitnilega út, sann-Afrískur glæpur og allt. Ég væri alveg til í að horfa á þessa þáttaröð.

Celtx, Scripped og Zhura

mánudagur, 25 febrúar, 2008

Núorðið er hægt að verða sér úti um ýmisskonar ókeypis handritsforrit á netinu, þ.á.m. hin undarlega nefndu Celtx, Scripped og Zhura.

Celtx er ekki nema nokkurra ára gamalt og hefur fengið fína dóma og þegar fest sig í sessi. Það er upprunnið í Nýfundnalandi og stílað inn á ‘indie’ (les: ‘utan-Hollywood’) kvikmyndagerð. Menn hlaða því niður og geta t.d. valið um að vista handritin sín á harða disknum ellegar þá á læstu “geymslusvæði” á netinu. Þetta á m.a. að gagnast þeim sem skrifa handrit saman, sparar þeim vinnuna við að senda handrit sín á milli með tölvupósti. Og þeim náttúrlega sem vilja geyma handritin sín einhversstaðar þar sem þeir geta veitt öðrum (Celtx-notendum) aðgang að þeim.

Scripped og Zhura eru glæný af nálinni og sáralítil reynsla komin á þau. Þetta eru reyndar einhver ‘netlæg’ fyrirbæri, ekki forrit sem maður þarf að installera í tölvuna sína. Ég er ekki alveg viss um hvort það sé sniðugt. Skyldi vera hægt að importera slíkum ‘online’ handritum inn í Final Draft og Movie Magic Screenwriter? Veit einhver það? Ef það er ekki hægt þá ættu menn að láta Scripped og Zhura vera.

Final Draft (FD) og Movie Magic Screenwriter (MM) heita nefnilega handritsforritin sem eru allsráðandi í kvikmyndaiðnaðinum í dag, bæði austan hafs og vestan, og allir framleiðendur nota. Þetta eru líka dýrustu forritin á markaðinum — enda mikið til stíluð inn á framleiðsluferlið, gerð töku- og kostnaðaráætlana, skipulagningu o.þ.h., það sem gerist eftir að handritsskrifum er lokið.

En menn þurfa ekki að verða sér úti um flókin og dýr forrit til þess eins að spreyta sig á því að skrifa kvikmyndahandrit. Í rauninni nægir að útbúa sér Word forsnið, það dugar alveg ágætlega (og það sem meira er: Word forsnið eru stabíl eins og klettur en forrit tiktúrusöm — því flóknari sem handritsforrit eru þeim mun tiktúrusamari og pöddusæknari). Eða einfaldlega næla sér í eitthvað ókeypis af netinu.

En hvað svo sem höfundurinn notar við skriftirnar þarf á endanum að vera hægt að importera eða flytja handritið inn í FD eða MM. Það gæti nefnilega farið svo — þó að það séu auðvitað sáralitlar líkur á því, svona tölfræðilega séð — að honum takist að skrifa handrit sem er algjör hittari og framleiðendur slást um að fá að fjármagna og gera að bíómynd. En FD og MM (eða a.m.k. MM) eru opin fyrir innflutningi héðan og hvaðan svo yfirleitt á þetta að ganga nokkuð þrautalaust fyrir sig.

Viðbót 27. febrúar: Það ku vera lítið mál að exportera þessum handritum í txt formati inn í Final Draft og sjálfsag önnur handritsforrit líka.