Brot úr sjónvarpssögu Suður-Afríku
miðvikudagur, 27 febrúar, 2008
Sjónvarpsútsendingar hófust ekki í Suður-Afríku fyrr en um miðjan áttunda áratuginn — heilum 20 árum á eftir Íslandi. Sjónvarp krefst dreifikerfis og þareð hvíti minnihlutinn bjó svo dreift í landinu stóð það mjög lengi í mönnum að ráðast í þá heljarinnar framkvæmd að koma upp nauðsynlegu dreifikerfi.
Svo leið aðskilnaðarstefnan undir lok og þá fyrst varð sprenging í framleiðslu innlends efnis fyrir sjónvarp. Sápur eru mjög fyrirferðamiklar en nú eru menn að fikra sig út í — hvað annað –sakamálaþáttagerð.
Búturinn hérna fyrir ofan er úr Zero Tolerance sem er fyrsti suður-afríski krimminn. Ég veit það eitt um þennan þátt að árið 2000 fengu framleiðendurnir til sín tvo bandaríska handritshöfunda/framleiðendur til skrafs og ráðagerða um verklag og til að starta handritsvinnunni; Suður-Afríkumenn skrifuðu þó eigi að síður öll handritin og sáu alfarið um þáttagerðina. Þetta lítur nokkuð forvitnilega út, sann-Afrískur glæpur og allt. Ég væri alveg til í að horfa á þessa þáttaröð.