Hvernig væri að spyrja áhorfendur hvað þeim finnst?
miðvikudagur, 5 mars, 2008
Horfði á síðasta þáttinn af maraþonkrimmanum Forbrydelsen. Fléttan er í meira lagi barrokkleg eins og við er að búast af framhaldsþáttum í 20 hlutum. En ég náði nú samt að botna þokkalega í henni og kalla það gott því ég sá ekki nema helminginn af þáttunum eða tæplega það.
Fyrir örfáum árum kom hingað aðalframleiðandi Danska ríkissjónvarpsins (DR), Svend Clausen, og hélt fyrirlestra. Svend þessi er aðalhugmyndasmiður dönsku nýsköpunarinnar — það er varla hægt að kalla það annað en það — og maðurinn á bak við fjölda þáttaraða sem nutu mikilla vinsælda í heimalandinu og víðar, t.d. Taxa, Rejseholdet, Króníkuna og Örninn.
Margt skondið kom upp úr kafinu á þessum fyrirlestrum. Meðal annars sagði hann að þegar framleiðsla á nýrri þáttaröð stæði fyrir dyrum hjá DR þá hafi hann það fyrir sið að láta viðkomandi framleiðanda (pródúsent) skrifa undir samning þess efnis að hann/hún 1) ábyrgist að fara ekki yfir kostnaðaráætlun og 2) ábyrgist að þættirnir fái minnst x í einkunn hjá áhorfendum. Auðvitað eru þetta ekki alvörusamningar heldur einhverskonar táknrænar undirskriftaathafnir sem eiga að þjappa mönnum saman um ákveðin meginmarkmið.
DR lætur sér nefnilega ekki nægja að mæla áhorfið heldur eru þátttakendur í könnunum beðnir um að gefa þáttum einkunn (á skalanum 0-10 að mig minnir). Langar leiknar þáttaraðir eru fokdýrar í framleiðslu og DR sættir sig þarafleiðandi aldrei við neitt minna en rokna áhorf — en menn sækjast líka stíft eftir að þær fái góða dóma hjá áhorfendum og setja sér ákveðin markmið í þeim efnum. Sama gildir vitaskuld um þætti sem eru með lítið áhorf af náttúrulegum orsökum — þ.e.a.s. þætti sem fjalla um einhver sértæk málefni sem fyrirfram er vitað að höfða ekki til hins breiða fjölda. Ef þáttur hefur ekki nema 10 eða 15% áhorf, segjum, þá skiptir auðvitað höfuðmáli hvaða dóm hann fær hjá þessum 10 eða 15 prósentum.
Mér skilst reyndar að svona einkunnagjafir hafi eitt sinn verið fastur liður í áhorfskönnunum hér á landi en að því hafi verið hætt fyrir u.þ.b. 15 árum. Á einhverjum tímapunkti ákváðu íslensku sjónvarpsstöðvarnar semsé að það skipti ekki máli hvað áhorfendum raunverulega finnst. Kannanir eru fyrst og fremst þjónusta við auglýsendur og auglýsendur hafa ekki áhuga á öðru en áhorfstölum, fjölda rassa í sætum.
Þetta er e.t.v. nógu gott fyrir einkareknar stöðvar. En varla RÚV. Ef það er meiningin að halda úti ríkissjónvarpsstöð af menningarástæðum (með allri þeirri forgjöf á markaði sem því fylgir) þá þarf að vera til staðar einhver ákveðin sýn á hlutina hjá því fyrirtæki, einhver menningarleg sérstaða. Ekki bara þindarlaus samkeppni við einkastöðvarnar um áhorfstölur.
