Script Wizard, Pages og Montage
föstudagur, 4 apríl, 2008
(Sjálfstætt framhald af þessari færslu hér). Handritsforsnið eru bersýnilega á hverju strái. Pésaeigendur sem nota Office geta fengið sér add-on sem heitir Script Wizard (kostar $69). Makkaeigendur sem nota ritvinnsluforritið Pages (partur af iWorks) eru með ókeypis handritsforsnið innbyggt.
Af “alvöru” handritsforritum er það að segja að vinur minn einn sem er gjörkunnugur málum fullyrðir að Montage (nýlegt, fyrir Makka einvörðungu) sé miklu traustara en bæði MM Screenwriter og Final Draft, enda nútímalegri smíði. Og að það sé greiður samgangur milli Montage og tökuáætlanaforrita, s.s. þetta er ekki bara eitthvert “stand alone” fyrirbæri.