Íslendingar þurfa mikið andrými

föstudagur, 30 maí, 2008

Hvað þýðir “andrými”? Notar þú einhverntíman þetta orð? Svo hljóða spurningarnar í könnun sem ég framkvæmdi á dögunum (sem var að vísu fremur óvísindaleg þaðeð þátttakendur voru einungis þrír og þeir eru allir vinir mínir).

Orðið andrými er ekki nema rúmlega hundrað ára gamalt. Eftir öllum sólarmerkjum að dæma var afskaplega lítil hreyfing á því fyrstu áratugina og raunar allt til loka 20. aldar en þá læsti það sig um þjóðfélagið á örfáum árum. Með dyggri aðstoð Sjálfstæðisflokksins sem ekki alls fyrir löngu kom því í kastljós fjölmiðlanna með eftirminnilegum hætti. En hvað þýðir það? Google-leit leiddi í ljós að andrými getur þýtt býsna margt – óþarflega margt finnst manni – og að vinsældir þess eru orðnar slíkar að fólk hnoðar því inn í setningarnar hjá sér jafnvel þótt það kosti það að þær verði hálfóskiljanlegar.

En það eru þrjú megin-merkingartrend í gangi.

Stjórnmálamenn, prestar, viðskiptajöfrar og menntafrömuðir hafa mikið dálæti á þessu orði ef marka má Google. Í þeirra meðförum þýðir það oftast svigrúm eða frestur sem gefur mönnum tækifæri til að endurskipulegga sig, íhuga eða leysa úr erfiðum úrlausnarefnum, undirbúa næstu aðgerðir o.s.frv. En þegar óbreyttir þegnar þessa lands segja andrými þá meina þeir pása, tími til að kasta mæðinni. Af þessu má draga þá ályktun að því menntaðri og betur launaðir sem menn eru þeim mun líklegri séu þeir til að taka sér hlé frá vinnu til þess að vinna — ef eitthvað er, leggja þeir harðar að sér í hléum en í vinnutímanum sjálfum. Venjulegt fólk hefur sterka tilhneigingu til að líta svo á að pásur í vinnu eða daglegu amstri séu til að slappa af.

En andrými getur líka þýtt rými, þ.e. persónulegt rými, olnbogarými. Alkunna er að Evrópubúar – ekki síst N-Evrópubúar – þurfa meira persónulegt rými en t.d. fólk frá Miðausturlöndum svo ekki sé talað um fólk í fjarlægari heimshornum. Sem lýsir sér m.a. í því að menn vilja hafa svo og svo mikla fjarlægð milli sín og t.d. viðmælanda sinna, annars fá þeir köfnunartilfinningu. Gúggl-leitin leiddi í ljós að íslendingar eru ekki bara plássfrekir heldur finnst þeim geðheilsu sinni beinlínis stefnt í voða ef þeir fá ekki ómælt andrými – rými til að anda í – ásamt hæfilegum skammti af einveru.

Þriðja aðalmerking orðsins andrými er eingöngu notuð í tengslum við arkitektúr, skipulag, myndlist og aðrar sjónrænar listir. Þar merkir það opin svæði, tóm eða eyður sem aðskilja hlutina og gera það að verkum að þeir fái notið sín. Þetta er semsagt rýmið sem hlutirnir – hvort sem þeir eru manngerðir eða ekki — þurfa að hafa svo að það geti andað almennilega um þá.

SVIGRÚM, FRESTUR TIL AÐ TAKAST Á VIÐ VANDA, HUGSA SINN GANG, SNÚA SIG ÚT ÚR KLÍPU O.S.FRV.

” Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja gefa oddvita sínum Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni það andrými sem hann hefur nú beðið um til að hugsa hvort hann taki aftur við embætti borgarstjóra” (úr RÚV frétt)

“Fyrstu viðbrögð Jesú eru sérstæð. Hann laut niður og skrifaði með fingrinum á jörðina. Kannski var hann að vinna sér umhugsunarfrest og stuðla að því um leið að lögmálshyggjumennirnir hugsuðu ráð sitt […] En allt um það – þetta ráð gefur andrými inn í að því er virðist óleysanlegar aðstæður og vekur óþolinmæði andstæðinganna, sem veikir stöðu þeirra” (af vefsíðunni Trúin og lífið)

“Jón Ásgeir segir í viðtalinu, að endurskipulagning sem kynnt var í vikunni, geri Baugi hægar um vik að takast á við þau fjárfestingarverkefni, sem beðið hafi á borði fyrirtækisins undanfarið. Þetta muni losa um peninga og lánalínur, sem hafi verið bundnar við annað undanfarið og gefa Baugi gott andrými” (af Mbl.)

“Börn læra að taka ábyrgð með því að kanna ýmsa möguleika og læra hvað þeirra eigin ákvarðanir hafa í för með sér. Þess vegna þurfa þau að hafa ákveðið svigrúm eða andrými sem við þurfum að gefa þeim” (af vefsíðu um mennta- og skólamál)

TÓM, PÁSA, HLÉ, STUND MILLI STRÍÐA, TÆKIFÆRI TIL AÐ KASTA MÆÐINNI

Mín afgamla Orðabók Menningarsjóðs tjáir mér að andrúm merki “tóm til að anda”. Andrými hefur eiginlega tekið við af andrúm, sennilega vegna þess að fólki finnst það smartara orð.

“Leið og ég fékk andrými kíkti ég aðeins á blöðin frá síðustu dögum. Sá eitt og annað vafasamt” (af bloggsíðu)

“Ekkert hlé, ekkert andrými, engin bið milli atlaga. Hann vann hverja orrustu, nær oftast með mun uppá brot úr hálfri hársbreidd” (af bloggsíðu)

“Mér fannst tilvalið – svona í því andrými sem myndast hefur undanfarið vegna takmarkaðra frétta af Víkingsstúlkum – að deila því með ykkur hvernig við Bjarney Sonja eyddum gærkvöldinu” (af bloggsíðu)

“Svo er smá andrými til 18. des., þá er brúðkaup hjá Kalla og Jennu” (af bloggsíðu)

“Nú af afloknu prófkjöri þar sem fimm efstu sætin voru ákveðin, mun uppstillingarnefnd taka sér smá andrými, en hefja síðan vinnu við að gera tillögu um sæti nr. 6.-18. og leggja fyrir kjördæmisþing” (af vef Framsóknarmanna í Skagafirði)

“ ÍBV situr eitt eftir á botninum með 14 stig. KR-ingar tylltu sér í annað sæti deildarinnar með sigrinum og hafa 23 stig en úr því sæti duttu Keflvíkingar með tapinu á Akranesi. Íslandsmeistarar FH hafa því enn mikið andrými á toppi deildarinnar með 30 stig” (af vefsíðu Bæjarins bestu)

“RÝMI TIL AÐ ANDA Í” Í EIGINLEGRI OG ÓEIGINLEGRI MERKINGU: PERSÓNULEGT SVÆÐI, OLBOGARÝMI, EINVERA, FRIÐUR

“Tilboð var gert í íbúð upp í Skipholti sem býður upp á talsvert meira andrými en núverandi íbúð” (af bloggsíðu)

“ Lyftan var ýkjulaust ca 1 fm og í hana var troðið þar til andrými hvers og eins var vægast sagt skelfilega lítið” (af bloggsíðu)

“Land Rover: Discovery 3 er fullvaxinn jeppi og er sem slíkur með mikið rými [...] Með öll farþegasæti í uppréttri stöðu eru enn eftir 260 lítrar fyrir farangur. Og andrými – þreföld sóllúganveitir víðsýni og notalega frelsistilfinningu” (auglýsingatexti af vefsíðu)

“Strákarnir hennar Dóru gistu í nótt, stelpan verður að fá sitt andrými, það er á hreinu, má ekki loka sig inni hérna. Ég man þegar ég var alein í heiminum.. eða svo til. Ég hefði verið til í að fá andrými oftar” (af bloggsíðu)

“Núna singur Nina Simone fyrir mig og ég er ein heima í nokkra daga sem er frábært. Smá fallegt andrými. En ég hlakka óneitanlega mikið til að fá að hitta kæra aftur, bara svo enginn misskilningur geti átt sér stað því þetta er nú einu sinni ritað mál” (af bloggsíðu)

“ Hún vóg 4075g (16 merkur) og var 51cm. Hún er æðisleg. Við þökkum kærlega fyrir allar hlýju kveðjurnar sem við höfum fengið en viljum á sama tíma biðja fólk um að gefa okkur andrými að minnsta kosti fram í miðja næstu viku” (af bloggsíðu)

“LEBENSRAUM”

Þjóðir og þjóðflokkar þurfa land — svæði til búsetu, ræktarlönd, auðlindir – annars hangir tilvist þeirra á bláþræði.

“Barátta almennings og þjóða um andrými, auðlindir og rétt til mannsæmandi lífs getur orðið afar hörð” (úr Landsfundarplaggi VG)

“Þegar hún komst nálægt því að fylla út í rými sitt fann hún að hún var að missa svigrúmið […] en bandaríska valdastéttin örvænti eigi. Hún hafði séð þessa stund fyrir og hafði undirbúið að brjótast úr þrengslunum, fá nýtt andrými” (af Múrnum)

“Réttlæti er víða fótum troðið og víða er fólki haldið niðri og látið búa við ómanneskjulegar aðstæður. Þetta verður að heyrast. Og ofbeldi hefur vissulega verið skilið sem ein leið til að beita þegar hópar og einstaklingar reyna að skapa sér andrými og lífsviðurværi” (af vef Þjóðkirkjunnar)

AUÐ EÐA OPIN SVÆÐI, TÓM, “LOFT”

Björn Bjarnason er eini stjórnmálamaðurinn sem notar orðið andrými í þessari merkingu (og engri annarri). Sennilega er það vegna þess að hann eyddi mörgum og löngum árum í menntamálaráðuneytinu.

“R-listinn hefur með öllu hunsað þennan eindregna vilja borgarbúa og haldið hefur verið áfram að búa í haginn fyrir Háskólann í Reykjavík á þessum bletti við Öskjuhlíðina, sem enn veitir henni andrými gagnvart Vatnsmýrinni.” (af bloggi Björns Bjarnasonar)

“Sýningin er ein stór innsetning á sama tíma og hvert verk fær sitt andrými” (af vefsíðu Menningarmiðstöðvarinnar Skaftfells)

“Gott andrými skapast á myndfletinum en í minni myndum er frekar hætta á innilokun” (úr umsögn á vef myndlistarmanns”)

“Sannfærandi auglýsingamynd. Vel gert, er oft ekki að fíla svona svarthvítt blandað lit, en mér finnst þetta ganga upp. Mætti kanski gefa henni smá andrými vinstra megin?” (athugasemd á spjallsíðu um ljósmyndun)

“ATMOS”, ANDRÚMSLOFT Í ÓEIGINLEGRI MERKINGU ÞESS ORÐS

“Gunnlaugs saga er talin [...] mótuð af andrými riddarasagnanna” (Gunnar Benediktsson 1971, úr ritmálsskrá Orðabókar Háskólans)

Ekki voru mörg dæmi á gúgglinu um andrými í merkingunni “atmos” eða stemning. Það eru aðallega arkitektar og innanhússhönnuðir sem halda uppi merkjum í þessum geira.

“Lýsingin í Bláa lóninu er í einstöku samræmi við arkitektúr byggingarinnar og mótar jafnframt hlýtt og notalegt andrými” (úr áliti dómnefndar Norrænu lýsingarverðlaunanna)

“Eins og öllum er ljóst þá er litaval og hönnun lýsingar ákaflega mikilvæg bæði fyrir starfsemi í húsnæðinu og það andrými sem óskað er eftir” (kynningartexti af vef arkitektastofu)

“Það er ekki nokkur vegur eða ástæða til að lýsa atburðarás þessa snjalla leikrits Mayenburgs, en það er (eins og segir í Morgunblaði gærdagsins) paródía á fegurðardýrkun samfélagsins. Leikritinu lýkur í andrými hinnar fullkomnu sjálfsdýrkunar með kossi tveggja samhverfra andlita” (af bloggsíðu)

“Kristindómurinn hefur ‘eignað’ sér stóru stundirnar í lífi einstaklinganna. Fæðingu, nafngift, giftingu, skilnaði og dauða. þetta er hrikaleg frekja að mínu mati. í þessu andrými starfar kirkjan og notar tækifærið til að troða sínum endatímaboðskap, ruglingslegri guðfræði og smættandi heimssýn til þeirra sem standa á þessum tímamótum” (af spjallvef Vantrúar)

DITTINN OG DATTINN

Hann verður þó að skilja að innan Framsóknarflokksins er andrými til skoðanaskipta (af bloggsíðu Hjálmars Árnasonar)
Sloppy orðalag á borð við þetta setja svona kannanir alveg úr skorðum. Meinar Hjálmar að andrúmsloftið í Framsóknarflokknum virki hvetjandi til skoðanaskipta? Eða að þar í flokki gefi menn sér tíma til að skiptast á skoðunum? Eða er kannski verið að tala um lungnaþol til skoðanaskipta?

“Hrafnagilshátíðin gekk vel og einhvernveginn meira andrými þar en oft áður” (af bloggsíðu)
Var hátíðin fámennari en venjulega? Dagskráin ekki eins þétt skipuð? Því miður er ekkert sagt neitt meira um Hrafnagilshátíðina svo maður fær sennilegast aldrei að vita hvað skapaði þetta aukna andrými þar eða í hverju það fólst.

“Um helgar hittust þau gjarnan í mat heima hjá hvort öðru, þó öllu sjaldnar heima hjá hinum andríku af því þau bjuggu fremur þröngt þó að vissulega væri af nógu andrými að taka, öll borð ævinlega yfirfljótandi af allra handa grímugerðardóti, söng- og nótnaheftum og alls konar nótnapári”
Hm. Hér virðist andrými þýða e-k andlegt rými, hjávídd þar sem andinn eða andagiftin getur breitt úr sér.

“Grunnur allsherjarsamkomulags í þessum efnum getur ekki byggst á öðru í framtíðinni en að hver jarðarbúi hafi jafnan aðgang að sameiginlegu andrými” (af vefsíðu Hjörleifs Guttormssoonar).
Af samhenginu (Kyoto og loftmengun) má ráða að andrými þýði hér andrúmsloft í bókstaflegri merkingu þess orðs – loftið sem jarðarbúar anda að sér. Hér áður fyrr var ekki óalgengt að andrúm og andrými væri notað í þessari merkingu en það er algjörlega dottið úr tísku nú.

“Það sem er samt merkilegast við þessa vél að hún er ÖLL modular […] og er vélbúnaðurinn þannig byggður að það er talsvert andrými fyrir uppfærslur á öllum hugbúnaði vélarinnar” (úr umræðum á ljósmyndavef)
Þarna er nokkuð langt seilst, finnst mér. En samt er eitthvað fallegt við þetta. Næst þegar ég kaupi mér tölvu ætla ég að spyrja hvernig sé með andrýmið í henni.

“Verði ólögin að lögum setja þau fjölmiðla landsins í mjög þrönga stöðu til fjármögnunar og gera þeim nánast ómögulegt að ná andrými” (af bloggsíðu Björgvins G. Sigurðssonar)
andrými? Er Björgvin ekki að blanda saman andrými og orðasambandinu að ná andanum? En þetta skilst og raunar er það svo að andrúm/andrými í merkingunni lungu eða rúmtak lungna (og jafnvel öndunarvegur) stendur á mjög gömlum merg, samanber þetta dæmi frá 17. öld: “Alant er kostulig logon(æ)kning firer þa sem hafa þrogon(ó)ngtt vm briostid eða andrumid” (úr ritinu Lækningakraptar nockurra urta) og þetta frá 1981: “Þessi alltof hraði megrunarkúr hafði svipt hann krafti, viðbragðsflýti og andrými”.

“Í lögum um stjórn fiskveiða segir hins vegar skýrt að þjóðin öll eigi auðlindina. Framkvæmdastjórinn taldi að menn hefðu sett þetta inn í lögin ‘í ákveðnu andrými’” (af bloggsíðu).
Framkvæmdastjórinn hefði átt að hafa túlk meðferðis. Mér dettur helst í hug að hann sé að segja að í þjóðfélaginu (eða löggjafasamkundunni) hafi á sínum tíma ríkt allsérstætt andrúmsloft sem gerði það að verkum að þingmenn ákváðu að skella þessu ákvæði inn í lögin.

AÐ LOKUM: KÖNNUNIN

Það kom mér verulega á óvart hve niðurstöður könnunarinnar sem ég gat um í upphafi eru fjölbreyttar, einkum þegar haft er í huga að úrtakið var allmiklu minna en t.d. Félagsvísindastofnun mælir með. Þær renna líka stoðum undir þá kenningu mína að það sé nokkurnveginn hægt að sirka út stöðu fólks í þjóðfélaginu eftir því hvernig það skilgreinir eða notar orðið “andrými”. Raunar leiddi þessi könnun eitt í ljós sem ekki kom fram í gúggl-leitinni — af skiljanlegum ástæðum — og það er að til er þjóðfélagshópur sem notar orðið andrými alls ekki vegna þess að þeim finnst það svo tilgerðarlegt.

En hér koma niðurstöðurnar:

Könnunarþoli #1 (vísindamaður og aktivisti): Ég nota orðið andrými stundum – fá/gefa andrými til að gera hitt eða þetta. Varðandi merkinguna kemur orðið svigrúm upp í hugann.

Könnunarþoli #2 (kvikmyndagerðarmaður): Andrými finnst mér þýða pláss til að anda, og þar með að vera til. Rými til að lifa og leika sér. Einhvers konar Lebensraum, hugtakið sem nazistar notuðu, en andrými er auðvitað ekki gildishlaðið. Orðið andrými nota ég hins vegar aldrei. Kannski af því að það er ekki nógu hversdagslegt. Þegar mér finnst að mér þrengt nota ég önnur orð; þá bið ég um meira pláss eða meiri tíma, þá skapa ég mér aðstöðu (sem er auðvitað dálítið menntamannalegt) eða bara ég vil fá að njóta mín. Orðið andrúmsloft nota ég stundum um stemningu, það gera líka Þjóðverjar stöðugt.

Könnunarþoli #3 (skáld): Sammála síðasta ræðumanni og þarsíðasta líka, ,”svigrúm”,”pláss til að anda í”. Andrými hef ég einu sinni notað í ljóði. Ég hef hinsvegar oft notað andstæðu þess þ.e. ,,andþrengsli” Tilfinning um kaffæringu er sínálægur hryllingur.

Í næsta mánuði verður frumsýnd enn ein ofbeldis- og effektahlaðna stórmyndin sem gerist í veröld ofurhetja: Wanted. Fjallar hún um bandalag eða bræðralag ofur-launmorðingja sem … ja, ég er ekki alveg viss um sem hvað. En hún er byggð á vinsælli grafískri skáldsögu samnefndri.

Frómt frá sagt eru svona myndir ekki minn tebolli. En það er býsna athyglisvert að bera saman þessar tvær stiklur fyrir Wanted; önnur er gerð fyrir bandarískan markað og hin fyrir rússneskan. Þótt menn hafi haft úr sama myndefninu að moða þá er tónninn í þeim svo ólíkur og andrúmið að annað eins misgengi hefur tæpast sést. Og áherslurnar -– bandaríkjamenn tefla t.d. Angelinu Jolie fram sem einum aðal sölupunkti myndarinnar en rússar skauta nánast alveg framhjá persónunni. Wanted er fyrsta Hollywood-mynd rússneska (kasakstanska?) leikstjórans Timur Bekmambetov, þess er skaut fremur skyndilega upp á alþjóðlegan stjörnuhiminn fyrir 3-4 árum með ofurmenna-fantasíutrylli sínum Nightwatch sem gerist í Moskvuborg.

Ekki er ólíklegt að markaðsdeild Universal hafi lamið saman “offissíal” stikluna en Timur karlinn hafi haft frjálsar hendur með gerð þeirrar rússnesku.

Fyrst ameríska stiklan:

Og svo hin rússneska:

Stórveldið Ísland kortlagt

föstudagur, 9 maí, 2008

HEIMSKORT SEM ENDURSPEGLAR MEÐALFRAMLEIÐSLUKOSTNAÐ BÍÓMYNDA
Getur það verið að meðalframleiðslukostnaður sé (tvöfalt?) hærri á Íslandi en í BNA? Ef trúa má þessu korti er hann það. Ekki beint sennilegt en samt hugsanlegt.

Kostnaðurinn við gerð bandarískra stórmynda hleypur vissulega á hundruð miljónum dollara en í rauninni eru ekki ýkja margar slíkar gerðar á ári (kannski 20 eða svo). Á hinn bóginn er alveg gríðarlega mikið framleitt af ‘no-budget’ myndum og það kann að draga bandaríska meðalframleiðslukostnaðinn allhrikalega niður. Þar vestra er nefnilega stærðarinnar markaður fyrir hræbillegar genre-myndir — einkum hasar og hrylling — sem fara beinustu leið á DVD. Roger Cormann varð stórveldi í kvikmyndaheiminum með því að framleiða myndir sem tók tvær vikur að taka upp og kostuðu næstum ekki neitt.

Það er líka spurning við hvaða ár er miðað. Á Íslandi, ólíkt stóru framleiðslulöndunum, er mjög mikill áramunur á meðalframleiðslukostnaði — sum árin eru ‘lo-budget’ og ‘no-budget’ myndir áberandi, önnur árin dýrari myndir.

Meðalframleiðslukostnaðurinn er mjög hár í Evrópu, einkum norðantil, og Danmörk er beinlínis tröllsleg á þessu korti. En Nýja Sjáland (grænu flykkin í suð-austurhorninu) slær allt út. Annaðhvort hefur kortagerðarmaðurinn farið línuvillt þegar hann var að rýna í tölfræðigögnin eða hann tekur Hringadrottinsmyndirnar þrjár inn í dæmið en upptökur á þeim fóru einmitt fram á Nýja Sjálandi á árunum 1999-2000. Svo vill til að íslenskar myndir voru óvenju margar og dýrar árið 2000. Svo kannski erum við að horfa á árið 2000.

HEIMSKORT SEM ENDURSPEGLAR FJÖLDA FRAMLEIDDRA BÍÓMYNDA (MIÐAÐ VIÐ HÖFÐATÖLU)

Ísland drottnar hér yfir heimsbyggðinni. Verst að það skuli ekki vera til kort yfir aðsókn í kvikmyndahús, þá væri örugglega hægt að pakka heimsbyggðinni saman og koma henni fyrir á Vatnajökli.

Glöggt má sjá hverslags stórveldi Norðurlöndin eru. Þó að meðalframleiðslukostnaðurinn sé hár eru menn að framleiða reiðinnar býsn hér norður í fámenninu.

Þetta stærðarinnar rauðleita landflæmi austur í Asíu er Hong Kong. Í HK eru menn ekki bara snillingar í að framleiða kvikmyndir hratt og ódýrt heldur framleiða þeir fyrir útflutning og hafa gert allt frá fyrstu tíð. Þ.e. allt frá því að kvikmyndamógúlarnir flúðu frá Shanghai í kjölfar valdatöku Maós á 5. áratug síðustu aldar og settu upp bækistöðvar í nýlendu þessari. Markaðirnir fyrir Hong Kong myndir eru fyrst og fremst löndin í Suðaustur Asíu svo og hin ótal mörgu kínversku samfélög eða þjóðarbrot sem eru dreifð um heim allan. Þessi 7 miljón manna þjóð hefur því afar mikla sérstöðu — hvergi annarsstaðar í heiminum framleiða menn stíft fyrir útflutning, nema þá í BNA auðvitað.

Þótt undarlegt megi virðast eru kort þessi ættuð úr Volkswagen auglýsingu sem birtist í breska blaðinu The Observer nú í vikunni (“See films differently. Volkswagen supports independent cinema.”). Auglýsingin er þegar komin á hina gagnmerku vefsíðu Strange Maps.

Á vellinum

miðvikudagur, 7 maí, 2008

Þessi nýja fótbolta- eða fótboltaskóauglýsing eftir Guy Ritchie er býsna skemmtileg. En á ÞúTúpunni sér maður náttúrlega ekki nema reykinn af réttunum.