Túkall!

miðvikudagur, 29 október, 2008

Ég ætla ekki að draga menn lengur á svarinu við hinni æsispennandi getraun í síðustu færslu.

Téð sena er úr kvikmynd sem hefur ekki sést í manna minnum enda orðin aldarfjórðungsgömul: Skilaboð til Söndru (1983). Byggð á samnefndri skáldsögu eftir Jökul Jakobsson sem út kom árið 1981.

Leikstjóri er Kristín Pálsdóttir og handritið skrifuðu þau Guðný Halldórsdóttir, Kristín og Árni Þórarinsson. Sagan fjallar um miðaldra rithöfund sem sest að í afskekktum sumarbústaði til þess að ljúka við skáldsögu sem hann er með í smíðum. Húsverk eru eitthvað sem maðurinn treystir sér ekki til að tækla svo hann fær sér ráðskonu til að annast um sig í þessari sjálfskipuðu útlegð. Þetta er eiginlega það eina sem ég man um efni myndarinnar.

Bessi Bjarnason leikur rithöfundinn Jónas. Sú “köstun” kom á óvart því Bessi var á þessum tíma – og rauninni alla tíð – klossfastur í gamanhlutverkum. Ásdís Thoroddsen leikur lopapeysuhippann sem gerist ráðskona. Þetta var bæði upphafið og endirinn á leikferli Ásdísar (ef frá er talið smáhlutverk sem stóískur bankagjaldkeri í Nói Albinói) en hún sneri sér hinsvegar að skriftum og leikstjórn, gerði t.d. Inguló (1992) og Draumadísir (1996).

Úr hvaða íslensku bíómynd er þetta?

mánudagur, 27 október, 2008

Síðast var ég með platgetraun, þetta er alvörugetraun. Hvað heitir myndin, hver er leikstjórinn og eftir hvern er skáldsagan sem hún er byggð á? Bónuspunktar fyrir 1) nafn handritshöfundar og 2) nöfn leikaranna í senunni.

Man ekki hvað persónurnar heita í myndinni svo ég kalla þær Héðinn og Thelmu. Og Kóp.

INNI SUMARBÚSTAÐUR/VINNUSTOFA – DAGUR

Héðinn situr hugsi við skrifborðið. Starir á autt blaðið í ritvélinni. En augun hvarfla að glugganum.

ÚTI SUMARBÚSTAÐUR – DAGUR

Thelma situr á grasflötinni og leikur sér við Kóp.

INNI SUMARBÚSTAÐUR/VINNUSTOFA – DAGUR

Héðinn tekur sig á og snýr sér að ritvélinni. Byrjar að hamra á lyklaborðið.

ÚTI SUMARBÚSTAÐUR – DAGUR

Thelma er að gæla við Kóp þegar Héðinn ranglar út á grasflötina. Um leið og hundurinn verður hans var skokkar hann burt með hraði.

HÉÐINN

Hvernig stendur á því að þessi hundur þeysist alltaf í burtu í hvert sinn sem hann sér mig?

THELMA

Ég veit það ekki.

HÉÐINN

Ég er þó hundavinur. Hvað finnur hann hjá þér sem hann finnur ekki hjá mér?

Leggst niður á fjórar fætur og kallar á eftir Kópi.

HÉÐINN

Hvutti! Hvutti, hvutti, hvutti-hvutt!

Kópur bregst við með að forða sér ennþá lengra burt.

THELMA

Þú varst vondur við hund í fyrra lífi.

HÉÐINN

Svo þú trúir á fyrra líf?

THELMA

(stendur upp)

Trúir þú á þetta líf?

HÉÐINN

Ja, ég veit ekki betur en ég sé til.

Enginn vissi rétta svarið. Enda ekki von.

mánudagur, 27 október, 2008

Senan sem ég birti í síðustu færslu er úr Mad Man þætti (hvað annað) sem var frumsýndur fyrr í þessum mánuði vestur í Bandaríkjunum.

Skrítið samtal atarna. Ekkert tiltakanlega línulegt eða rökrænt í framvindu. Áhorfendur verða að lesa undirtextann, draga sínar eigin ályktanir.

Forsagan er sú að Don Draper – sem aldrei setur sig út færi að halda framhjá konunni sinni – er staddur á ráðstefnu í Palm Springs. Þar kynnist hann sætri stelpu og með þeim takast skyndiástir. Senan gerist daginn eftir, þegar óvæntur gestur birtist inn á teppi. Don þekkir þetta fólk ekki nokkurn skapaðan hlut. Hann botnar ekkert í þessum samræðum fremur en áhorfandinn.

Íslensk frumsýning á stórsniðugu plugin-i

föstudagur, 24 október, 2008

Nú geta bloggarar orðið sér úti um plugin til að birta senur úr kvikmyndahandritum (rétt upp settar) á bloggsíðum og jafnvel á kommentakerfum. Það er bandaríski handritshöfundurinn John August, eljusamur bloggari sjálfur, sem skrúfaði þetta plugin saman með aðstoð góðra vina. Það heitir Scrippet og er nú öllum aðgengilegt, sjá nánar hér.

Til að reynslukeyra þetta plugin birti ég senu úr handriti. Spurt er: Úr hvaða handriti? Vegleg verðlaun eru í boði fyrir þann sem kemur með rétta svarið (ath. ég breytti nöfnum persóna).

INNI SVEFNHERBERGI – DAGUR

Danni og Birta eru enn í rúminu þegar HEKTOR kemur inn, grannur maður um sextugt í hvítum stuttbuxum. Þau draga yfirlökin þéttar að sér til að hylja nekt sína.

HEKTOR

Góðan daginn.

DANNI

Góðan dag.

BIRTA

(við Hektor)

Hittirðu þá þarna frammi?

HEKTOR

Nei, þetta er hver stórkostleg niðurlægingin á fætur annarri.

(sest til fóta þeim)

Kidda er að koma með börnin, ég vona að það sé í lagi þín vegna.

BIRTA

Það er sama hvað ég mæti seint á svæðið, alltaf skal Kidda mæta seinna en ég.

HEKTOR

Líttu á hann.

(við Danna)

Þú ert svo fallegur.

BIRTA

Pabbi …

Hún réttir úr öðrum fótleggnum og sparkar létt í hann.

HEKTOR

Þú ert dekurrófa.

(við Danna)

Hún er alveg jafn duttlungafull og mamma hennar.

BIRTA

Það er nú þessvegna sem þú elskar mig.

Hektor strýkur henni um ökklann.

HEKTOR

(við Danna)

Finnst þér ég ekki búa til falleg börn?

(stendur upp)

Sé ykkur úti.

Danni bíður þar til Hektor er farinn.

DANNI

Er þetta pabbi þinn?

BIRTA

Hann vill ekki virka gamall á fólk.

Óvænt uppákoma á kaffistofu

miðvikudagur, 22 október, 2008

Og áfram með Mad Men! Það sem allrafyrst slær mann við þessa þáttaröð er hvað menn hafa lagt sig í líma við að negla 1962 lúkkið nákvæmlega niður — allt frá nærfatnaði leikkvennanna (þær eru látnar ganga í spangabrjóstahöldurum, magabeltum, sokkaböndum, korselettum, allt ekta frá períódunni) og yfir í kvikmyndatökuna. Flöt lýsingin, statískur tökustíllinn og drottningarlegar hreyfingar tökuvélarinnar – allt er þetta nákvæm eftiröpun á stíl amerískra meginstraumsbíómynda ca 1960. En virkar ótrúlega “arty” nú.

Eftirfarandi kaffistofusena er mjög dæmigerð fyrir stílinn.

Tveir af hinum lægri settu starfsmönnum auglýsingastofunnar hyggjast fara og hlusta á Bob Dylan og samræður spinnast út frá því. Þótt maðurinn í brúnu jakkafötunum með grátt í vöngum segi fátt snýst senan ekki síst um hann; þetta er homminn meðal yfirmannanna, vandlega læstur inni í skápnum.

Galnir menn

Sunnudagur, 19 október, 2008

Stöð 2 stendur sig mjög vel í valinu á bandarískum sjónvarpsþáttaröðum. Þeir sýndu The Wire – sem er tímamótaverk í sjónvarpssögunni. Og þeir eru að fara að sýna Mad Men í vetur.

Mad Men er snilld en er ekki alltaf sem auðveldastur áhorfs.

Sögusviðið er auglýsingastofan Sterling-Cooper, hin stærsta og öflugasta á Madison Avenue. Árið er 1962, þegar neysluþjóðfélagið sem við búum í var í hraðri mótun. Sagan gerist í rauninni í dægilegum lognpolli rétt áður en fárviðrið skall á: Réttindabarátta svartra, kvenfrelsishreyfingin, hippatímabilið. Allir reykja í vinnunni og eru með Jack Daniels fleyg í efstu skrifborðsskúffunni. Hommar eru kyrfilega inni í skápnum, svartir starfa sem þjónar eða bílstjórar og gyðingum er haldið í hæfilegri fjarlægð. Semsagt, þetta var paradís á jörð.

Hringekjusenan er ein hin eftirminnilegasta úr fyrstu syrpunni. Þarna er verið að kynna Don Draper til sögunnar, aðalpersónu þáttaraðarinnar. Toppmanninn á stofunni.

Kodak er komið með glænýtt pródúkt á markaðinn: slædsmyndahringekjuna. Don Draper fer á kostum á fundi með Kodakliðinu þegar hann er að selja þeim konseptið sem Sterling-Cooper hefur unnið fyrir auglýsingaherferðina.

12 ára strákur er lagður í einelti í skólanum. Svo eignast hann vinkonu þegar stelpa á sama reki flytur inn í næsta hús ásamt föður sínum. En þá fara óhugnanlegir atburðir að gerast í hverfinu, morð og mannshvörf …

Låt den rätte komma in (Tomas Alfredson, 2008) er sænsk vampírumynd, hvorki meira né minna, og sögusviðið verkamannahverfi í Stokkhólmi. Skyldum við fá að sjá þessa mynd í bíó? Eða ætla íslenskir bíóhúsaeigendur að bíða eftir amerísku endurgerðinni sem er víst í brunandi undirbúningi núna? (Í leikstjórn Matts Reeves, þess er gerði hina fremur hallærislegu skrímslamynd Cloverfield).

Íslenskur hryðjuverkamaður á barnum

þriðjudagur, 14 október, 2008

Nýjasta innleggið frá Hvolsvelli.