Í meðallagi sannspá
Sunnudagur, 16 nóvember, 2008
Brúðguminn stóð uppi sem sigurvegari Eddunnar með sjö verðlaun (og Egill Helgason sem hlaut hvorki meira né minna en þrenn verðlaun). Hvorki Sveitabrúðkaup né Skrapp út komust á blað. Né heldur Latibær sem er þó gríðarlega dýr í framleiðslu – jafnvel á alþjóðamælikvarða — og ekkert til sparað í gervum, búningum, leikmynd og hljóði, enda allt mjög fagmannlega af hendi leyst. Kannski akademíumeðlimir séu farnir að líta svo á að Latibær eigi ekki heima í Eddunni, sé alþjóðlegt efni fremur en íslenskt.
Ég reyndist sannspá í um helmingi tilfella, með 11 rétta af 21. Sæbjörn Valdimarsson – sem spáði um úrslit Eddunnar í Mogganum í dag – var líka með 11 rétta. En það var bara í fjórum flokkum sem við giskuðum bæði rétt: BÚNINGUM (Helga Stefánsdóttir), KVIKMYNDATÖKU (Bergsteinn Björgúlfsson), TÓNLIST (Barði Jóhannsson) og HEIMILDAMYND (Kjötborg).
Og í fjórum flokkum höfðum við hvorugt rétt fyrir okkur: LEIKIÐ SJÓNVARPSEFNI, Dagvaktin hlaut verðlaunin, ég sagði Svartir englar en SV Pressa; LEIKARI Í AÐALHLUTVERKI, Hilmir Snær hlaut verðlaunin en við SV giskuðum bæði á Baltasar Kormák; LEIKKONA Í AUKAHLUTVERKI, Ólafía Hrönn hlaut verðlaunin en ég sagði Hanna María Karlsdóttir og SV Ilmur Kristjánsdóttir; LEIKARI Í AUKAHLUTVERKI, Þröstur Leó Gunnarsson fékk verðlaunin en við SV sögðum bæði Jóhann Sigurðarson.
Edduspá
Sunnudagur, 16 nóvember, 2008
Fyrsta Edda í kreppu verður haldin í kvöld. Yfirleitt hefur manni fundist Edduúrslitin býsna fyrirsjáanleg en svo er ekki að þessu sinni. Kannski er það vegna þess að flokkarnir eru óvenju bústnir og sællegir, þökk sé góðæri undanfarinna ára. En ég ætla nú samt að reyna að spá fyrir um úrslitin.
Þennan pistil skrifaði ég mestanpart í gærkvöld. Svo sá ég á mbl.is í morgun að Sæbjörn Valdimarsson er með spá svo ég fór og keypti Moggan og skeytti hans spá aftan við mína. Skemmst er frá að segja að þessar tvær spár eru skemmtilega ósamhljóða.
KVIKMYND ÁRSINS: REYKJAVÍK ROTTERDAM
Brúðguminn toppar allt með 14 tilnefningar. Myndin er ágætlega skemmtileg, margar góðar senur og persónusköpun margra leikaranna afar sterk. En á heildina litið er hér á ferð illa lukkuð uppsuða úr lélegasta leikriti Tsékovs svo ég á mjög bágt með að trúa að hún verði valin mynd ársins.
Spá Mbl.: Brúðguminn
LEIKIÐ SJÓNVARPSEFNI ÁRSINS: SVARTIR ENGLAR
Ég segi bara eitthvað. Ég kaus ekki í þessum flokki vegna þess að ég hef ekki séð alla þættina sem tilnefnir eru (Dagvaktina, Latabæ, Mannaveiðar, Pressu og Svarta engla).
Það er mjög undarlegt ósamræmi í gangi milli þessa flokks og kvikmyndaflokksins. Af sex bíómyndum síðasta Eddu-árs eru þrjár tilnefndar en þrjár hlutu ekki náð fyrir augum dómnefndar: Skrapp út, Duggholufólkið og Stóra planið. En þegar kemur að leiknu sjónvarpsefni bregður svo við að ALLAR þáttaraðir síðasta árs eru tilnefndar (nema kannski Næturvaktin). Það er ekki hægt að túlka þetta öðruvísi en svo að dómnefndinni hafi fundist þættirnir svo jafngóðir að það væri ekki hægt að gera upp á milli þeirra.
Spá Mbl.: Pressa.
STUTTMYND ÁRSINS: SMÁFUGLAR
Vegna þess að Smáfuglar er tvímælalaust ein af þrem bestu stuttmyndum sem gerðar hafa verið á Íslandi frá uphafi. (án þess að ég treysti mér til að fullyrða hverjar hinar tvær gætu verið). Þessi mynd hefur verið að raka að sér verðlaunum á erlendri grund og ég hygg að akademíumeðlimir viti það velflestir. Þegar frægðarsögur berast frá útlöndum er næsta víst að Eddu-sigur er í höfn, hvort sem menn hafa séð myndina eða ekki.
Spá Mbl.: Harmsaga.
LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI: SÓLVEIG ARNARDÓTTIR
Ég held að valið standi milli Sólveigar og Margrétar Vilhjálmsdóttur. Sólveig er ferskari í minni vegna þess að það er svo stutt síðan Svartir englar voru sýndir en Margrét lék geðveika konu sem hugsanlega gefur henni forskot í hugskotum akademíumeðlima. Það hefur sýnt sig í gegnum tíðina að hlutverk sem gefa tilefni til ýktra tilþrifa – geðveiki, alvarlegt drykkju- eða fíkniefnavandamál, þroskahömlun eða einhver skrítilegheit – skila leikurum oft upp á verðlaunapalla. En eitt er víst: Didda Jónsdóttir vinnur ekki. Skrapp út var ekkert tiltakanlega vel sótt og númer tvö þá held ég að leikurum – sem eru stór hópur innan akademíunnar – hugnist ekki að kjósa manneskju sem er ekki leiklistaskólagengin og ekki í Félagi íslenskra leikara.
Spá Mbl.: Sólveig Arnardóttir
LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI: BALTASAR KORMÁKUR
Engin spurning. Þeir Hilmir Snær og Pétur Einars voru báðir í mjög “innvortis” hlutverkum sem gáfu þeim engin raunveruleg tækifæri til grípandi persónusköpunar.
Spá Mbl.: Baltasar Kormákur
LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI: HANNA MARÍA KARLSDÓTTIR
Það er erfitt að spá. Þær Hanna María, Ólafía Hrönn og Ilmur eru allar mjög góðar. Fleiri leikkonur voru reyndar mjög góðar í aukahlutverkum og það hefði mátt tilnefna eins og tvær til viðbótar í þennan flokk.
Spá Mbl.: Ilmur Kristjánsdóttir
LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI: JÓHANN SIGURÐARSON
Hér stendur valið milli þriggja leikara úr Brúðgumanum — Jóhanns, Þrastar Leó og Ólafs Darra. Að ósekju hefði mátt tilnefna fleiri í þessum flokki.
Spá Mbl.: Jóhann Sigurðarson
BÚNINGAR ÁRSINS: HELGA STEFÁNSDÓTTIR (fyrir Brúðgumann)
Síðasta Eddu-ár var ekkert sérlega gott búningaár, finnst mér. Kaus ekki í þessum flokki.
Spá Mbl.: Helga Stefánsdóttir
GERVI ÁRSINS: ÁSLAUG DRÖFN SIGURÐARDÓTTIR (fyrir Reykjavík Rotterdam)
Ég kaus ekki í þessum flokki og hef sama og enga skoðun á málinu.
Spá Mbl.: Ragna Fossberg fyrir Spaugstofuna.
HLJÓÐ ÁRSINS: KJARTAN KJARTANSSON (fyrir Reykjavík Rotterdam)
Sá ekki Rafmögnuð Reykjavík og kaus því ekki í þessum flokki.
Spá Mbl.: Björn Viktorsson, Steingrímur Eyfjörð og Bogi Reynisson fyrir Rafmögnuð Reykjavík.
KLIPPING ÁRSINS: VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR (fyrir Sveitabrúðkaup)
Þetta er erfiður flokkur og niðurstöður úr Eddu-kosningunum hafa mér oft þótt æði undarlegar. Valdís er langþekktasti klippari Íslands og ég hygg að það muni færa henni sigurinn, hvort sem menn hafa séð Sveitabrúðkaup eða ekki.
Spá Mbl.: Elísabet Ronaldsdóttir fyrir Reykjavík Rotterdam
KVIKMYNDATAKA ÁRSINS: BERGSTEINN BJÖRGÚLFSSON (fyrir Brúðgumann)
Ég byggi þessa spá mína aðallega á því að hinir kvikmyndatökumennirnir tveir sem tilnefningu hlutu eru útlendingar: Kjell Vasdal (Duggholufólkið) og Tumo Hurti (Harmsaga). Ég held að útlendingar séu óvinsælir á Íslandi um þessar mundir.
Spá Mbl.: Bergsteinn Björgúlfsson
LEIKMYND ÁRSINS: SNORRI FREYR HILMARSSON (fyrir Latabæ)
Spá Mbl.: Atli Geir Grétarsson og Grétar Reynisson fyrir Sveitabrúðkaup
TÓNLIST ÁRSINS: BARÐI JÓHANNSSON (fyrir Reykjavík Rotterdam)
Spá Mbl.: Barði Jóhannsson
HANDRIT ÁRSINS: ARNALDUR INDRIÐASON OG ÓSKAR JÓNASSON (fyrir Reykjavík Rotterdam)
Hin handritin sem tilnefningu hlutu eru Brúðguminn og Dagvaktin. Ég kaus ekki í þessum flokki. Mér finnst þetta alls ekki þrjú bestu handrit síðasta Eddu-árs.
Spá Mbl.: Baltasar Kormákur og Ólafur Egilsson fyrir Brúðgumann
LEIKSTJÓRI ÁRSINS: BALTASAR KORMÁKUR (fyrir Brúðgumann)
Ég kaus ekki í þessum flokki, m.a. vegna þess að ég hef ekki séð Dagvaktina en Ragnar Bragason er tilnefndur fyrir hana.
Spá Mbl.: Baltasar Kormákur Óskar Jónasson
SJÓNVARPSMAÐUR ÁRSINS: EGILL HELGASON
Mér leiðist þessi flokkur, skil ekki hugsunina. Kaus ekki.
Spá Mbl.: Eva María Jónsdóttir
FRÉTTA- EÐA VIÐTALSÞÁTTUR ÁRSINS: SILFUR EGILS
Á grundvelli þess að Silfur Egils hefur haft óvenju mikla vikt í þjóðfélagsumræðunni síðustu vikurnar.
Spá Mbl.: Út og suður.
MENNINGAR- EÐA LÍFSTÍLSÞÁTTUR ÁRSINS: KILJAN
Ég kaus ekki í þessum flokki, hef ekki séð Kátu maskínunina og Ítalíuævintýri Jóa Fel. En ég held að það megi reikna með að menningarþáttur vinni frekar en matreiðsluþáttur.
Spá Mbl.: Káta maskínan.
SKEMMTIÞÁTTUR ÁRSINS: GOTT KVÖLD
Ég held að Gott kvöld vinni vegna þess að þessi þáttur er með stærstu og flottustu leikmyndina og skartar auk þess aðalsjónvarpsbeibi landsins, Ragnheiði Steinunni. Hin hlðin á peninginum er Svalbarði. Kannski bara Svalbarði vinni.
Spá Mbl.: Útsvar
HEIMILDAMYND ÁRSINS: KJÖTBORG
Heimildamyndaflokkurinn er óvenju gróskumikill í ár. Ég spái því að Kjötborg vinni vegna þess að myndin hefur verið í almennum sýningum og á stóran hóp aðdáenda. Fyrir nú utan það að vera frábær mynd. Ég held að náttúrulífsmyndir eigi mjög erfitt uppdráttar í Eddunni og sömuleiðis myndir um listamenn og aðra afreksmenn.
Spá Mbl.: Kjötborg.
Eddan er að stálpast
laugardagur, 15 nóvember, 2008
Þó að Eddan sé alltaf jafn glyðruleg hafa innviðir keppninnar verið að styrkjast hægt og bítandi á síðustu árum. Það var t.d. stórt skref í framfaraátt þegar rafræn kosning var tekin upp. Kosningaþátttaka akademíumeðlima hefur lengstum verið pínlega lítil en nú skilst mér að hún sé farin að slaga hátt upp í 50%.
Akademíumeðlimir þurfa ekki að kjósa í öllum flokkum. Sem er líka gott mál. Menn hafa ekki alltaf sterkar skoðanir á öllum hlutum og ég get ekki heldur ímyndað mér að nokkur maður sjái allar þessar myndir og þætti sem hljóta tilnefningar (sem þetta árið er eitthvað um 35 stykki).
Það er eiginleg lágmark að efnt sé til sýninga á tilnefndum myndum þannig að meðlimir akademíunnar hafi tækifæri til að sjá þessi verk sem þeir eru að kjósa um, eða a.m.k. sem flest þeirra. Á þessu hefur verið mjög mikill misbrestur í gegnum tíðina. ÍKSA skiptir sér ekkert af þessum lið framkvæmdarinnar, það er alfarið á ábyrgð einstakra framleiðenda að sjá um að kynna afurðir sínar. Mjög góð mæting var á fjórar stuttmyndir sem voru sýndar saman í Regnboganum s.l. miðvikudag en annars var sýningaprógrammið mjög tætingslegt og flestar myndir fremur illa sóttar. Til að skapa meiri stemningu meðal akademíumeðlima í kringum kosningarnar þarf að skipuleggja þessar sýningar betur en ég veit ekki hver ætti að hafa yfirumsjón með því. ÍKSA? KMÍ? Eitthvert af þessum þrem félögum framleiðenda sem eru í landinu?
Ásgrímur Sverrisson átti kollgátuna
mánudagur, 3 nóvember, 2008
Ási átti svarið við síðustu getraun: Nei er ekkert svar frá 1995. Leikstjóri er Jón Tryggvason og handritið skrifuðu þeir Marteinn Þórisson og Jón Tryggvason.
Ef til vill er ástæða til að skjóta því að — bara svona í forbifarten — að Marteinn Þórisson er ekki sami maður og Marteinn Þórsson. Þetta er einlægt að valda ruglingi.
Marteinn Þórisson (annar höfunda Nei er ekkert svar) starfar erlendis sem handritshöfundur og hefur gert um langt árabil. Marteinn Þórsson hinsvegar er kanadískt-menntaður kvikmyndagerðarmaður — handritshöfundur og leikstjóri — sem búsettur er á Íslandi. Það nýjasta nýtt er að hann hefur skrifað handrit eftir skáldsögu Hallgríms Helgasonar, Rokland. Verkefni sem er á vegum Pegasus og er á undirbúningsstigi þegar þessar línur eru ritaðar.
En svo við snúum okkur aftur að Nei er ekkert svar. Leikurunum.
Ari Matthíasson og Skúli Gauta (held ég) leika skúrkana. Heiðrún Anna Björnsdóttir og Ingibjörg Stefánsdóttir leika vinkonurnar. Ég hef ekki hugmynd um hver lék keflaða manninn. Kannski var þetta bara eitthvað statistahlutverk.
Ási segir:
“Þessi mynd er afar misskilin að mínu mati, man þegar ég sá hana á sínum tíma, rétt fyrir frumsýningu og skellihló allan tímann. Hér er verið að vitna all frjálslega í frasa úr amerískri kvikmyndasögu og allt er frekar over the top en myndin er mikið fjör og skemmtilegur fíflagangur – eins og þessi sena ber vel með sér.”
Ég læt Ása hafa síðasta orðið. Hér eru senurnar úr Nei er ekkert svar:
Rakettur og nytsemi þeirra
mánudagur, 3 nóvember, 2008
Hér kemur getraun númer tvö. Þessi kvikmynd er ekki ný af nálinni en hún er allmiklu yngri en Skilaboð til Söndru svo margir ættu að muna vel eftir henni.
Hvað heitir þessi mynd? Hver leikstýrði og eftir hvern (hverja) er handritið? Og síðast en ekki síst: Hvað heita leikararnir fimm í senunni?
Sem fyrr diktaði ég upp nöfn persóna enda er mér ómögulegt að muna hvað þær heita í myndinni.
INNI VINNSLUSALUR – DAGUR
Jóndi situr bundinn og keflaður á bak við fiskkassastæðuna. Keflið er RAKETTA og hún er í stærra lagi. Þeir Annes og Týri eiga ýmislegt ósagt við kauða.
ANNES
Jóndi minn. Það eru tveir hringvöðvar í líkamanum, það er annarsvegar munnurinn og hinsvegar rassinn. Ef munnvöðvinn skemmist verðurðu bara að læra að tala með rassgatinu.
TÝRI
Þetta er satt.
(klappar Jónda á kinn)
Slappaðu af Jóndi minn! Við vitum að þetta var ekki þér að kenna.
ANNES
Það er enginn að ásaka þig vinur. Það verður bara að refsa einhverjum, sjáðu.
Týri tekur upp KVEIKJARA. En hann virkar ekki. Annes sprettur á fætur og þrífur hann af Týra en það er sama hvað hann hamast: stauturinn er dauður.
Týri dregur ELDSPÝTUSTOKK upp úr pússi sínu, sigri hrósandi. Annes þrífur hann samstundis af honum. Jóndi emjar og ekur sér af endurnýjuðum krafti.
TÝRI
Jóndi. Þú getur svikið mömmu þína, þú getur svikið ömmu þína. En þú svíkur ekki okkur!
Annesi tekst loks að finna heila eldspýtu. Hann kveikir og ber logann að kveikiþræðinum.
ANNES
Á ég að kveikja í þér? Ha? Á ég að kveikja í þér?
Jóndi er orðinn alveg frávita. Allt í einu heyrist SKARK frammi við dyrnar. Annes hendir logandi eldspýtunni frá sér og þeir félagar snara sér á vettvang.
Diljá fetar inn í vinnslusalinn með pappíra í hendi.
DILJÁ
Góðan daginn.
TÝRI
Hvað vilt þú?
DILJÁ
Ég frétti að þið söfnuðuð frímerkjum.
ANNES
Það getur verið.
DILJÁ
(otar pappírunum að Annesi)
Ég er með tilboð handa ykkur.
Annes stendur í dyrunum sem hún kom inn um og svipast um eftir mannaferðum til öryggis.
ANNES
Við erum alltaf opnir fyrir tilboðum.
TÝRI
Galopnir.
DILJÁ
(réttir Týra pappírana)
Það er þetta.
Týri lætur pappírana ganga til Annesar. Hann röltir um og skoðar þá.
ANNES
Ertu ný?
TÝRI
Djöfulli ertu sæt.
DILJÁ
(við Annes)
Um tvöhundruð arkir til viðbótar, hafiði áhuga eða ekki?
TÝRI
(grípur um brjóstið á henni)
Hvað heldur þú?
Diljá snýr sig úr takinu og lemur í Tyra. Hann rýkur í hana og þau stympast. Hún lætur hnéð ríða í klofið á honum svo hann lyppast emjandi niður á gólf.
DILJÁ
HAFIÐI ÁHUGA EÐA EKKI?
ANNES
Það er töggur í henni.
(við Diljá)
Þetta er þrusu skítur, hvar fékkstu þetta?
DILJÁ
Ég fékk hann í skóinn!
ANNES
(við Týra)
Borgaðu henni.
Hann lætur sig hverfa. Týri dregur upp seðlaknippi. Réttir Diljá en kippir því svo snöggt að sér.
TÝRI
Áttu eld?
Diljá grefur upp kveikjara úr buxnavasa sínum og réttir honum. Hann tékkar, kveikjarinn virkar.
TÝRI
Þú ert algjör lifesaver elskan.
Diljá þrífur seðlabúntið af honum og strunsar út.
Týri röltir til þeirra Jónda og Annesar sem eru á sínum stað á bak við fiskkassastæðuna. Hann er með kveikjarann á lofti, kveikir og slekkur.
TÝRI
Jóndi! Jú-hú!
Í annað sinn er logi borinn að kveikiþræðinum. Jóndi emjar en það gagnast lítið. Skyndilega stendur SNARKANDI GNEISTAFLUG aftan úr þessum boldangskveikiþræði og þeir Týri og Annes forða sér æpandi.
ÚTI VINNSLUSTÖÐ – DAGUR
Diljá sest inn í bílinn sem stendur fyrir framan opnar innkeyrsludyr vinnslustöðvarinnar. Eva situr undir stýri.
DILJÁ
Þeir segjast ætla að athuga málið.
Það gengur á með NEISTUM og LJÓSBLOSSUM inni í vinnslusalnum í bakgrunni en þær taka ekki eftir neinu.
DILJÁ
(réttir Evu seðlana)
Ég ætla að hitta þá hérna á morgun klukkan tíu og koma með restina.
Eva grípur um hökuna á Diljá í fögnuði sínum og kreistir.
EVA
Yess! Þú ert frábær elsku dúllan mín!
DILJÁ
KEYRÐU AF STAÐ!
EVA
(startar bílnum)
Við verðum ríkar, alveg hrikalega ógeðslega ríkar!
Um leið og bíllinn rúllar af stað kveður við langdregið ÝLFUR innan úr vinnslustöðinni og síðan SPRENGING.
Ronald Reagan plöggar Obama
Sunnudagur, 2 nóvember, 2008