Ásgrímur Sverrisson átti kollgátuna

mánudagur, 3 nóvember, 2008

Ási átti svarið við síðustu getraun: Nei er ekkert svar frá 1995. Leikstjóri er Jón Tryggvason og handritið skrifuðu þeir Marteinn Þórisson og Jón Tryggvason.

Ef til vill er ástæða til að skjóta því að — bara svona í forbifarten — að Marteinn Þórisson er ekki sami maður og Marteinn Þórsson. Þetta er einlægt að valda ruglingi.

Marteinn Þórisson (annar höfunda Nei er ekkert svar) starfar erlendis sem handritshöfundur og hefur gert  um langt árabil. Marteinn Þórsson hinsvegar er kanadískt-menntaður kvikmyndagerðarmaður — handritshöfundur og leikstjóri — sem búsettur er á Íslandi. Það nýjasta nýtt er að hann hefur skrifað handrit eftir skáldsögu Hallgríms Helgasonar, Rokland. Verkefni sem er á vegum Pegasus og er á undirbúningsstigi þegar þessar línur eru ritaðar.

En svo við snúum okkur aftur að Nei er ekkert svar. Leikurunum.

Ari Matthíasson og Skúli Gauta (held ég) leika skúrkana. Heiðrún Anna Björnsdóttir og Ingibjörg Stefánsdóttir leika vinkonurnar. Ég hef ekki hugmynd um hver lék keflaða manninn. Kannski var þetta bara eitthvað statistahlutverk.

Ási segir:

“Þessi mynd er afar misskilin að mínu mati, man þegar ég sá hana á sínum tíma, rétt fyrir frumsýningu og skellihló allan tímann. Hér er verið að vitna all frjálslega í frasa úr amerískri kvikmyndasögu og allt er frekar over the top en myndin er mikið fjör og skemmtilegur fíflagangur – eins og þessi sena ber vel með sér.”

Ég læt Ása hafa síðasta orðið. Hér eru senurnar úr Nei er ekkert svar:

Leave a Reply