Rakettur og nytsemi þeirra
mánudagur, 3 nóvember, 2008
Hér kemur getraun númer tvö. Þessi kvikmynd er ekki ný af nálinni en hún er allmiklu yngri en Skilaboð til Söndru svo margir ættu að muna vel eftir henni.
Hvað heitir þessi mynd? Hver leikstýrði og eftir hvern (hverja) er handritið? Og síðast en ekki síst: Hvað heita leikararnir fimm í senunni?
Sem fyrr diktaði ég upp nöfn persóna enda er mér ómögulegt að muna hvað þær heita í myndinni.
INNI VINNSLUSALUR – DAGUR
Jóndi situr bundinn og keflaður á bak við fiskkassastæðuna. Keflið er RAKETTA og hún er í stærra lagi. Þeir Annes og Týri eiga ýmislegt ósagt við kauða.
ANNES
Jóndi minn. Það eru tveir hringvöðvar í líkamanum, það er annarsvegar munnurinn og hinsvegar rassinn. Ef munnvöðvinn skemmist verðurðu bara að læra að tala með rassgatinu.
TÝRI
Þetta er satt.
(klappar Jónda á kinn)
Slappaðu af Jóndi minn! Við vitum að þetta var ekki þér að kenna.
ANNES
Það er enginn að ásaka þig vinur. Það verður bara að refsa einhverjum, sjáðu.
Týri tekur upp KVEIKJARA. En hann virkar ekki. Annes sprettur á fætur og þrífur hann af Týra en það er sama hvað hann hamast: stauturinn er dauður.
Týri dregur ELDSPÝTUSTOKK upp úr pússi sínu, sigri hrósandi. Annes þrífur hann samstundis af honum. Jóndi emjar og ekur sér af endurnýjuðum krafti.
TÝRI
Jóndi. Þú getur svikið mömmu þína, þú getur svikið ömmu þína. En þú svíkur ekki okkur!
Annesi tekst loks að finna heila eldspýtu. Hann kveikir og ber logann að kveikiþræðinum.
ANNES
Á ég að kveikja í þér? Ha? Á ég að kveikja í þér?
Jóndi er orðinn alveg frávita. Allt í einu heyrist SKARK frammi við dyrnar. Annes hendir logandi eldspýtunni frá sér og þeir félagar snara sér á vettvang.
Diljá fetar inn í vinnslusalinn með pappíra í hendi.
DILJÁ
Góðan daginn.
TÝRI
Hvað vilt þú?
DILJÁ
Ég frétti að þið söfnuðuð frímerkjum.
ANNES
Það getur verið.
DILJÁ
(otar pappírunum að Annesi)
Ég er með tilboð handa ykkur.
Annes stendur í dyrunum sem hún kom inn um og svipast um eftir mannaferðum til öryggis.
ANNES
Við erum alltaf opnir fyrir tilboðum.
TÝRI
Galopnir.
DILJÁ
(réttir Týra pappírana)
Það er þetta.
Týri lætur pappírana ganga til Annesar. Hann röltir um og skoðar þá.
ANNES
Ertu ný?
TÝRI
Djöfulli ertu sæt.
DILJÁ
(við Annes)
Um tvöhundruð arkir til viðbótar, hafiði áhuga eða ekki?
TÝRI
(grípur um brjóstið á henni)
Hvað heldur þú?
Diljá snýr sig úr takinu og lemur í Tyra. Hann rýkur í hana og þau stympast. Hún lætur hnéð ríða í klofið á honum svo hann lyppast emjandi niður á gólf.
DILJÁ
HAFIÐI ÁHUGA EÐA EKKI?
ANNES
Það er töggur í henni.
(við Diljá)
Þetta er þrusu skítur, hvar fékkstu þetta?
DILJÁ
Ég fékk hann í skóinn!
ANNES
(við Týra)
Borgaðu henni.
Hann lætur sig hverfa. Týri dregur upp seðlaknippi. Réttir Diljá en kippir því svo snöggt að sér.
TÝRI
Áttu eld?
Diljá grefur upp kveikjara úr buxnavasa sínum og réttir honum. Hann tékkar, kveikjarinn virkar.
TÝRI
Þú ert algjör lifesaver elskan.
Diljá þrífur seðlabúntið af honum og strunsar út.
Týri röltir til þeirra Jónda og Annesar sem eru á sínum stað á bak við fiskkassastæðuna. Hann er með kveikjarann á lofti, kveikir og slekkur.
TÝRI
Jóndi! Jú-hú!
Í annað sinn er logi borinn að kveikiþræðinum. Jóndi emjar en það gagnast lítið. Skyndilega stendur SNARKANDI GNEISTAFLUG aftan úr þessum boldangskveikiþræði og þeir Týri og Annes forða sér æpandi.
ÚTI VINNSLUSTÖÐ – DAGUR
Diljá sest inn í bílinn sem stendur fyrir framan opnar innkeyrsludyr vinnslustöðvarinnar. Eva situr undir stýri.
DILJÁ
Þeir segjast ætla að athuga málið.
Það gengur á með NEISTUM og LJÓSBLOSSUM inni í vinnslusalnum í bakgrunni en þær taka ekki eftir neinu.
DILJÁ
(réttir Evu seðlana)
Ég ætla að hitta þá hérna á morgun klukkan tíu og koma með restina.
Eva grípur um hökuna á Diljá í fögnuði sínum og kreistir.
EVA
Yess! Þú ert frábær elsku dúllan mín!
DILJÁ
KEYRÐU AF STAÐ!
EVA
(startar bílnum)
Við verðum ríkar, alveg hrikalega ógeðslega ríkar!
Um leið og bíllinn rúllar af stað kveður við langdregið ÝLFUR innan úr vinnslustöðinni og síðan SPRENGING.
mánudagur, 3 nóvember, 2008 at 8:08 pm
Hér þykist ég kenna handbragð míns kæra samstarfsfélaga Marteins Þórissonar, sem skrifaði handritið að myndinni ásamt Jóni Tryggvasyni. Þetta mun hafa verið upphafleg hugmynd frá Jóni og kallaðist Nei er ekkert svar. Þessi mynd er afar misskilin að mínu mati, man þegar ég sá hana á sínum tíma, rétt fyrir frumsýningu og skellihló allan tímann. Hér er verið að vitna all frjálslega í frasa úr amerískri kvikmyndasögu og allt er frekar over the top en myndin er mikið fjör og skemmtilegur fíflagangur – eins og þessi sena ber vel með sér. Og BTW, þegar ég sá myndina hafði ég ekki kynnst Marteini og var því ekki litaður af því á nokkurn hátt. Leikararnir eru allavega Ingibjörg Stefáns og var ekki Helgi Björns þarna líka, annars man ég það ekki vel. Gæti auðvitað svindlað og tékkað á IMDB…
Am I right or am I right?