Í meðallagi sannspá
Sunnudagur, 16 nóvember, 2008
Brúðguminn stóð uppi sem sigurvegari Eddunnar með sjö verðlaun (og Egill Helgason sem hlaut hvorki meira né minna en þrenn verðlaun). Hvorki Sveitabrúðkaup né Skrapp út komust á blað. Né heldur Latibær sem er þó gríðarlega dýr í framleiðslu – jafnvel á alþjóðamælikvarða — og ekkert til sparað í gervum, búningum, leikmynd og hljóði, enda allt mjög fagmannlega af hendi leyst. Kannski akademíumeðlimir séu farnir að líta svo á að Latibær eigi ekki heima í Eddunni, sé alþjóðlegt efni fremur en íslenskt.
Ég reyndist sannspá í um helmingi tilfella, með 11 rétta af 21. Sæbjörn Valdimarsson – sem spáði um úrslit Eddunnar í Mogganum í dag – var líka með 11 rétta. En það var bara í fjórum flokkum sem við giskuðum bæði rétt: BÚNINGUM (Helga Stefánsdóttir), KVIKMYNDATÖKU (Bergsteinn Björgúlfsson), TÓNLIST (Barði Jóhannsson) og HEIMILDAMYND (Kjötborg).
Og í fjórum flokkum höfðum við hvorugt rétt fyrir okkur: LEIKIÐ SJÓNVARPSEFNI, Dagvaktin hlaut verðlaunin, ég sagði Svartir englar en SV Pressa; LEIKARI Í AÐALHLUTVERKI, Hilmir Snær hlaut verðlaunin en við SV giskuðum bæði á Baltasar Kormák; LEIKKONA Í AUKAHLUTVERKI, Ólafía Hrönn hlaut verðlaunin en ég sagði Hanna María Karlsdóttir og SV Ilmur Kristjánsdóttir; LEIKARI Í AUKAHLUTVERKI, Þröstur Leó Gunnarsson fékk verðlaunin en við SV sögðum bæði Jóhann Sigurðarson.