Rembstu
mánudagur, 23 febrúar, 2009
Þegar hún Mariah Carey er búin að skafa af sér farðann og grisja í hárlengingunum kemur upp úr dúrnum að þetta er alveg ágætis leikkona …
Þessi sena er úr mynd sem heitir Push og sópaði til sín verðlaunum á Sundance í síðasta mánuði, þ.m.t. áhorfendaverðlaununum. Mariah er reyndar í fjarska litlu hlutverki; aðalhlutverkið er í höndum stúlkunnar sem leikur á móti henni — sem er ekki nema 16 eða 17 þótt ótrúlegt megi virðast. Það gerist næstum aldrei að svartar konur séu í aðalhlutverkum í kvikmyndum, hvað þá svartar offeitar unglingsstúlkur.
Eftir öllum sólarmerkjum að dæma ákvað Mariah að leggja þessari litlu og ódýru kvikmynd lið — og ekki bara hún heldur líka Lenny Kravitz sem kvað vera þarna í litlu hlutverki. Svo er að sjá hvað þessi stóru nöfn duga myndinni til framdráttar. Það þykir ekki svo lítil vegsemd að hreppa verðlaun á Sundance en afskaplega finnst manni fáar myndir skila sér til venjulegra áhorfenda.
Ég veit ekki með árið í ár en í fyrra voru ca 120 kvikmyndir sýndar á Sundance (af tæplega 4000 innsendum). Einungis fimm myndir lönduðu sæmilegum dreifingarsamningum og fóru í kjölfarið í almennar sýningar hér og hvar og komu á endanum út með (afar hóflegum) hagnaði. 15 myndir til viðbótar náðu dreifingarsamningum, fyrir smáskildinga í rauninni, en komu þrátt fyrir það út með stórtapi. Listræn eða ‘öðruvísi’ indie kvikmyndagerð er sko ekkert grín.