Það er ekkert blogg með bloggum nema hafa tengla á aðrar bloggsíður
miðvikudagur, 2 maí, 2007
Það eru afskaplega fáir tenglar á þessari bloggsíðu enn sem komið er en vonandi stendur það til bóta. Svo ég kynni nú “bloggflokkana”:
Í flokknum Kvikm/sjónvarp er lið sem ég hef unnið með eða þekki í gegnum kvikmyndir og sjónvarp. Ef einhverjir vita um fleiri bloggandi kvikmyndagerðarmenn þá endilega látið mig vita.
Matmenn eru íslenskir ástríðukokkar sem lofa manni að kíkja ofan í pottana hjá sér. Og taka líka ljósmyndir af mat.
Í flokknum Pipar & Salt eru blogg sem eiga það helst sameiginlegt að vera hugsuð fyrir stærri lesendahóp en bara fjölskylduna og vinina. Áhugaverð blogg úr lista- og menningargeiranum, það er hugmyndin með þessum flokki.
Ég ákvað að sleppa því að vera með tengla á stjórnmálablogg, fréttablogg, ferðasögublogg og veðurblogg. Líka blogg sem fjalla fyrst og fremst um daglegt líf: fjölskylduna, vinina, tómstundirnar, vinnuna/skólann, djammið, gæludýrin o.s.frv.
[SÍÐARI TÍMA VIÐBÓT]: Talandi um blogg. Sonur minn kenndi mér snilldar-trix sem er hægt að beita á svört blogg, s.s. þar sem letur er hvítt á svörtum eða mjög dökkum grunni. Virkar aðeins fyrir Makka. Ýtt á ctrl+alt+slaufu með annarri og á 8 með hinni, þá verður allur skjárinn negatívur. Sömu takkar til að breyta aftur í pósitívt.